Skilvirk vinnubrögð spara fjármagn

Aðalvík leggur áherslu á vönduð vinnubrögð, gerð verkáætlana og verkskil, ásamt trúnaði við verkkaupa.

Við leggjum mikla áherslu á gerð verksamninga, áætlanagerð og verkfundi verktaka og verkkaupa.

Um Aðalvík

Aðalvík ehf. var stofnsett í mars árið 1998 af þeim, Jóhannesi T. Halldórssyni og Páli Trausta Jörundssyni. Í upphafi voru starfsmenn um 10 talsins, en jafnt og þétt hefur starfsmönnum fjölgað, og eru nú 26 manns á launaskrá hjá fyrirtækinu.

Í upphafi árs 2007 bættust við 5 lykilstarfsmenn í eigendahópinn, eru þeir: Bjarni Arnaldsson, Bergur Ingi Arnarson, Friðrik Guðlaugsson, María Pálsdóttir og Þorgrímur Guðmundsson.

Trésmíðaverkstæði Aðalvíkur

Árið 2000 festi Aðalvík ehf, kaup á trésmíðaverkstæði að Hjallahrauni 7 í Hafnarfirði. Þar er starfrækt umtalsverð innréttingasmíði ásamt ýmiskonar smíðavinnu sem tengist öðrum vinnustöðum Aðalvíkur ehf, allt frá nýbyggingum til viðhalds og breytingavinnu ýmiskonar.

Á verkstæðinu starfa að jafnaði 5-6 menn. Starfsemin er annars alhliða byggingarstarfsemi, allt frá nýbyggingum til breytinga og viðhalds ásamt þjónustu við fyrirtæki og einstaklinga.

Stór þáttur í rekstrinum er tilboðs og verktakastarfsemi þar sem Aðalvík er aðalverktaki með allar iðngreinar undir sinni stjórn.

Verkefnin okkar

Staðsetning

STAÐSETNING

Aðalvík ehf

Síðumúla 13
108 Reykjavík